Álver Alcoa á Bakka við Húsavík - Frummatsskýrsla
Alcoa og HRV kynna nú frummatsskýrslu fyrir álver á Bakka við Húsavík með framleiðslugetu allt að 346.000 tonn á ári. Frummatsskýrslan verður til umfjöllunar hjá Skipulagsstofnun næstu 6 vikurnar og er auglýst á vef stofnunarinnar. Frummatsskýrsluna ásamt viðaukum má sækja á vefsíðum Alcoa og HRV .
Álver Alcoa fellur undir lög nr. 106/2000 m.s.br., um mat á umhverfisáhrifum, skv. 5. gr. og 5. mgr. 1. viðauka laganna. Alcoa er framkvæmdaraðili verksins en mat á umhverfisáhrifum er unnið af HRV Engineering.
Alcoa og HRV hvetja almenning og aðra til að koma skriflegum ábendingum og athugasemdum á framfæri við Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík, eigi síðar en 14. júní 2010.
Alcoa, Þeistareykir ehf., Landsvirkjun og Landsnet hf., standa að sameiginlegu mati á umhverfisáhrifum álvers á Bakka við Húsavík, Þeistareykjavirkjunar, Kröfluvirkjunar II og háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka samkvæmt úrskurði umhverfisráðherra frá 31. júlí 2008. Haldnar verða kynningar á framkvæmdum og frummatsskýrslunum í Þingeyjarsveit, á Húsavík, í Skútustaðahreppi og Reykjavík, sjá auglýsingu.
Frekari upplýsingar veita:
Arnór Þ. Sigfússon, verkefnisstjóri HRV (arnor.sigfusson@hrv.is),í síma 422 8466
Kristján Þ. Halldórsson, verkefnisstjóri samfélagsmála hjá Alcoa á Norðurlandi, í síma 470 7403
Frummatsskýrsla vegna álvers á Bakka:
Álver Alcoa á Bakka við Húsavík - Frummatsskýrsla
Álver Alcoa á Bakka við Húsavík - Frummatsskýrsla
( Pdf vefútgáfa 3,7 MB )
Viðaukar:
Viðauki 8 Fuglalíf á framkvæmdasvæði
Viðauki 13 Stratigraphy and tectonics
Viðauki 17 Tillaga að starfsleyfi


